Tíminn er loksinns runninn upp… og sandra fór að skrifa..
Já.. Það er einginn smá tími síðan að ég settist niður og skriafði færslu. Það er búið að gerast heil margt síðan ég bloggaði síðast.. t.d það að nú er komið sumar. Við erum búin að fara til akureyrar á landsmótið sem var alveg frábært. Geggjað veður allan tíman. Sigmar lennti í 5 sæti í tragtorskeppninni og viti menn.. ‘eg tók þátt líka.. Það var gröfukeppni.. ó já. og ég var ekki síðust og þó ekki fyrst en bara sátt með árgangurinn miðað við að fullt af karlönnum sem gerðu ógilt :O) (það þýðir að þeir gáfust upp).. ;O)
Allavega er ég og krakkarnir í sumarfríi svo við höfum bara verið að njóta sumarsinns hið ýtrasta það sem komið er af því. Gaman líka að segja frá því að Arnór er að vera hressari og hressari með hverjum mánuði og er ekki ólíklegt að hann sé bara búin að ná ónæmiskerfinu á rétt ról. Það verður tekið test á mótefnunum í ágúst.
Af Aldísi er allt gott að frétta. Hún er eldklár stelpa sem allir vita
í Akureyrarferðinni þá tilkynnti hún mömmu sinni og pabba það að þegar hún verður stór þá ætlar hún að finna sér mann sem á að heita Eyríkur. Þau ætla svo að fá sér barn sem á að heita Aríel. Spurning um að vera hafmeyjuaðdáandi nr 1.
jæja nóg komið af þessari fyrstu færslu eftir langan dvala.
ER ÞETTA STAÐREIND UM ÍSLAND!
Er þetta rétt ???? (var að fá þetta sent í pósti)
Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið á láni) og allar skuldir hreinsaðar vi ðhann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa hlutabréf, sumir fengu sér cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxus heimili. Allar skuldir hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar. Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu…. ég gæti haldið endalaust áfram… ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta.
þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með ofbeldi annars.
Þetta skrifa ég:
Ef þetta er virkilega staðreind þá… ##%%//U)I$))$))#U/U#/(($ uff þetta var gott…
jeii það tókst ;)
Góða kvöldið. Nú ætla ég að gera tilraun til þess að láta þetta blogg takast. En með því byrja ég á því að rita allt í word og sjáum hvað setur. Ég er bara hress og kát. Við getur sagt að það er búið að vera nóg að gera síðustu daga.
En mig langar til að byrja að segja frá óhappinu sem Allý lenti í. Þriðjudagskvöldið síðastliðinn þá var Allý á leið til grindavíkur ástamt 3 öðrum strákum. Þegar þau nálgast bláalónsafleggjara þá missti ökumaður stjórn á bílnum og bíllinn fór tvær veltur. Allý sat afturí ástamt öðrum stráki og voru þau hvorug í bílbelti. Í fyrstu veltunni kastaðist allý út um aftur gluggann og kastaðist í hraun. Þar með viðbeinsbrotnaði hún og fékk stórt gat á höfuðið og já ekki sá staður á líkamanum sem er ekki rispur á og nokkrar djúpar rispur. Vinur hennar sem sat með henni reyndi að halda henni inní bílnum en það er ekki hægt að stjórna neinu eða haldið sér þegar bíllinn fer á um 90 km hraða. Hann lenti út um afturrúðuna í annarri veltunni og stöðvaðist bíllinn sem betur fer réttur þar sem hann lá hálfur út. Hin tvö sem sátu frammí voru í belti og slösuðust þau lítil lega og sama eða sama og ekkert skildist mér. Allý lá á spítala fram yfir hádegi daginn eftir og saumað var 8 spor á hausinn. Allý er núna heima hjá sér lurku laminn og vonandi að hún skríður sem fyrst saman. Ég er svo þakklát fyrir að hún sé hér hjá okkur og þetta hefði getað farið miklu verr. Það var allavega greinilegt að einhver vaki yfir krökkunum og passar þau.
Arnór er búinn að vera meira og minna lasinn núna að í 2 mánuði. Hann hefur svo sem átt mjög góða daga líka. En núna er meira en vika síðan að hann er stöðugt búinn að vera með 38 og yfir. Hann var hitalaus í einn dag eða 37,1° en svo strax daginn eftir var hann kominn með 38° . Maður er farin að hafa reglu að mæla hann 1 sinni á morganga og 1 sinni að kveldi. En ef mér finnst hann mikið heitur þá mæli ég hann jafnvel 3 á dag. Hann var mikið slappur sama tíma og Allý lenti í slysinu en þá lá hann í fanginu á mér allan tíman og umlaði og grét. Mamma og ég sár vorkendum honum enda var ég stödd í grindavík þá. Í gær var hann bara þokkalega hress en samt með 38,5° og í morgun vaknaði hann með 38,5 og er komin núna í 39,3°. Maður fylgist vel með honum. Vitandi það að hann er með þennan galla er maður viðbúinn öllu og fylgja auðvitað áhyggjur þegar hann er svona oft lasinn. Þó ber hann sig alltaf jafn vel og brosir nánast alltaf alveg sama hversu veikur hann er. Enda hef ég sagt það áður.. Hann er bara álgjör hetja.
Aldís er ekki síður algjör hetja að vera svona þolinmóð með allt þetta stúss varðandi veikindi Arnórs. Ég geri eins og ég get að veita henni athygli líka og þá án Arnórs. Hún er alveg ótrúlega fljót að skilja þegar Arnór líður eitthvað verr en hann er vanur og er ekki mikið að bögga hann
Henni finnst svo gaman að klæða hann í einhver skrípa föt og já tölum um það þegar hún tók málningardótið sem Allý frænka hennar gaf og byrjaði að mála Arnór. Hann svo sátt með varalit og kinnalit. Ég gat ekki annað en hlegið og var ekki bölvuð myndavélin batteríslaus. Sigmar var að koma úr hálskirtlatöku svo ég er búin að hafa hann alveg heima í 2 daga og verður það fleiri dagar. Hann er mest búinn að vera í rúminu en hann jafnar sig
Það gengur bara vel í vinnunni. Gengur mjög vel í skólanum og er ég svona að átta mig betur á stærðfræðinni og vonandi að ég dragist ekki mikið meira aftur úr… Jæja nú er ég sko komin meira en heila blaðsíðu í word svo kannski ætti ég bara að fara hætta þessu blaðri. J
Við viljum svo að lokum óska Guðbjörgu og Kára til hamingju með strákinn , einnig Sveini og Dagnýu til hamingju með stelpuna. Guðbjörg er frænka sigmars og Sveinn er frændi hans. Hlökkum til að sjá erfingjana.
Endilega kvittið. Svo gaman að sjá hver hefur kíkt á bloggið
ohhh þetta blogg!!!
Jæja ég er búin að reyna að gera tvær tillraunir til þess að blogga.. og búin að skrifa alveg helling.. ég er hætt að reyna … !!!!! það eiðist allt út…
Núna er ég hand viss um að þetta litla blogg nær að saveast.. !! urrrr..
en ég er samt á lífi hehe..
kv. sandra
Tilkynning
12. mánaða skoðun.
Góðan daginn.
Nú vorum við að koma úr 12 mánaða skoðun með Arnór.. Ójá.. Þið lesið rétt… 12 mánaða skoðun. Þetta er fljótt að líða. 7. dagar þar til Arnór veðrur 1 árs.
Það kom allt vel út. Hann er orðinn 9.625 gr og 75,5 cm. Fylgir akkurat miðkúrfuni. Hann lætur ekkert veikindinn skemma kúrfuna. Hann fékk svo hefbundnu sprautu og eins og vanalega kemur ekki org frá honum. Aðeins gefur svona “hvað ertu að gera.. svip”… Allavega.. Nóttin var frekar skrítinn. Hann vaknaði svo sár og reiður í nótt og vissum við foreldrarnir ekkert hvað var að ángra hann. það tóks svo loks að róa hann og svaf hann svo rest af nóttinni. Hann er búinn að vera frekar argur í morgun og vantaði mömmu sína mikið. Mældi hann og hann er komin aftur með 38° en er búin að vera með 37,1° núna í 5 daga… ohh ekki segja mér að hann sé að verða veikur aftur..!!!
Við hittum eygló á ganginum og kom hún og spjallaði aðeins við okkur. Nú er þetta komið gott og erum við sámmála um að þetta sé bara byrjuninn af vetrinum.. Svo á mánudaginn erum við boðuð til hennar. Hún hefur samband við þá lækna sem þarf að ná tali af fyrir þann tíma og sjáum hvað setur. Við fengum að vita hvernig blóðrannsóknin kom út.. Ég skal nú segja ykkur það að börn meiga vera með 400 gildi af jarni.. Arnór er með 4 í járni, Blóðgildið má vera 171 en Arnór er með 101.. Allar þær tölur sem við sjáum á blaðinu eru flestar tölurnar undir mörkum. Sem þýðir að hann er lár í öllu. Þetta er ekki góð staða. Ekki skrítið að honum líður ekki allt of vel.. Ég verð nú að fá að segja það að þessi staða er að gera mig langþreitta. Mig langar að Arnór sé bara hress og geti farið í leikskóla. Alveg sama hvernig Arnóri líður hann getur alltaf brosað og virðist alltaf vera þokklegur að sjá þótt honum líður ekki vel. Heima er þetta þannig… hann getur ekki leikið sér nema að ég sé gjörsamlega upp við hann og hann verður að finna vel fyrir nær veru minnar. Ég er með hann á örmunum allan daginn þegar hann er vakandi. Hann tekur reglulega upp grátköst og grætur við smá uppákomu. En það koma samt dagar sem hann leikur sér á fullu sjálfur og þarf ekkert á mér að halda og þá er hann líka hress eins og síðustu 5 dagar hafa verið :) Svo maður veit það alveg að hann er ekki bara svona mömmusjúkur.
En við skulum nú ekki gleyma okkur bara í fréttum af Arnóri.
Aldís Tanja lennti í smá slysi í leikskólanum fyrir 2 dögum. Hún datt á trjágrein segir hún og stakst fyrir neðan augun. Þar með fékk hú skurð. Við þurftum að fara með hana á slysó og láta meta sárið. Eftir langa bið og 2 árum seinna fengum við loksinns að komast að.. Sárið hreynsað og plástrað saman. Aldís er alveg hörkudugleg og ekkert að kvarta þó augað sé hálf lokað fyrir bólgu og orðið , gult og fjólublátt af glóðurauga.
En annars langar mig að sýna ykkur skemmtilegt myndband af henni. Hún tekur vel undir öll lög sem hún þekkir
http://www.youtube.com/watch?v=ZrHOcn7qFq8
Ég er bara mjög hress
Heyrinn á vinstra eyra hefur ekki enn komið og finnst einginn ástæða fyrir því, Einginn bólga, einginn gröftur og ekkert sem stíflar rörinn. Svo á morgun fer ég aftur uppá spítala þar sem mér er búið að líða frekar skríngilega á hinu eyranu líka. Það er eins og heyrninn sé að tapast meira
Þetta átti ekki vera svona. En það kemur ljós..
Mér líður oft eins og ég noti þetta blogg einungis til þess að pústa… Sem er auðvitað mjög gott að geta nýtt sér þessar aðstæður til þess að láta í mér heyra.. En maður er farin að forðast aðeins að blogga þar sem bloggin mín snúast finnst mér einungis um veikindi. Allt svo niðurdrepandi.. En ég get nátturulega ekkert verið að segja að allt sé voðalega gott þegar það er það ekki einu sinni
svo þið veðrir bara sætta ykkur við niðurdrepandi blogg frá mér um sinn.
En uff jæja.. Ég ætla að fara leggja mig núna og vakna kannski örlítið hressari á eftir
p.s endilega kíkið á myndbandið og heyrið hvað hún er dugleg að syngja
Rigning og meiri rigning.
Góðan daginn.
Nú er greynilega að koma vetur. Arnór ekki hress og búinn að sofa í allan dag. Hann er búinn að vaka samtals 2 tíma dag. Gott að hann getur sofið þetta bara úr sér
En mig langaði að koma með tilkynningu..!!
Ég er komin með vinnu! Félagsþjónusta.
Eins og er, er þetta bara lítil vinna til að byrja með. eða 15-20 % vinna sem gera 22 klukkustundir á mánuði. Svo eykst hún með tímanum. Og væntanlega þegar það fer að ganga betur með Arnór og gengur vel hjá arnóri í leikskólanum get ég aukið við mig vinnu.. Akkurat sem ég þurfti. Þetta er bara spurning hvað ég get tekið að mér og hvað mörg hús eru í boði. Einnig fæ ég aksturspening fyir utan launinn. Svo ætla ég bara að sjá hvort það sé einhverstaðar í boðið þrif á kvöldinn og þá get ég aðeins létt undir okkur fjárhagslega.
Enda verður það gott að komast aðeins út í annað umhverfi.
Félgasþjónustan er ekki endilega bara þrífa, það að fara í búðina fyrir fólk, spila, tala, út í göngutúr, hjálpa til með börnin ef þess er óskað og margt fleira. bara örugglega mjög fjölbreitt starf.
Það veðrur kannski svolítið púsluspil hvernig þetta verður með Arnór. En verður örugglega ekkert mál þar sem þetta er nú ekki margir tímar til að byrja með ;)
Ég er bara spennt fyrir þessu strafri og gaman að prufa eitthvað nýtt.
Fréttir af Arnóri.
Jæja þá var ég að fá hringingu frá Eygló barnalæknir. Hún tilkynnti okkur stöðuna af mótefnaskortinum hjá Arnóri.
Hún er ekki góð. Hann hefur þó hækkað örlítið en langt frá því sem vonast var eftir. Hann þarf því að vera á sýklalyfunum áfram og þarf því að fá mótefninn af öllum líkindum. En það er spuring hvenær það verður gert. Eða hvenær það verður byjrað á því skyldist mér á henni..
Arnór er núna búinn að vera með hósta núna í 1 og 1/2 mánuð. Hann er þó búinn að vera nokkuð hress. Þó svo að hiti sé við örðu og hvoru. Að öllu jöfnu er hann með 38° en við erum ekkert að kippa okkur lengur við þennan hita. Hann var þó algjörlega hitalaus í sumar eða alltaf með 2 kommur. Svo við vitum alveg að þetta er ekki hans líkamshiti 38°. Nú orðið uppá síðkastið hefur hann verið að rjúka uppí hita og svo dettur hann niður alveg að 39° og svo alltí einu dettur hann niður.. Ég talaði um þennan hita við hana og lét hana vita að ég lét kíkja í eyrun hans í byrjun september og þá voru þau hreyn svo þetta er ekki eyrun. Enda sefur barnið vel og nokkuð hress eins og ég segi.. Bara búin að vera með þennan hósta. Öryggisvegna vill hún hlusta á hann. Hvernig staðan er innra með honum eins og ég kalla það
miðvikudaginn næsta.
En þá varð það mál nr 2. Hann er enn járnlítill. Þó svo við höfum verið að gefa honum járn í meira en mánuð sem er heldur ekki gott. Þannig það er spuring hvernig hann sé að vinna úr járninu eða hvort hann þurfi enn meira af járni til að rétta sig af..
jæja vildi láta ykkur vita stöðuna.
Við vonum bara það besta og hann eigi ekki eftir að vera eins veikur og hann var í byrjun árs.
Gullkorn.
Nú ætla ég að deila með ykkur gullkornum frá Aldísi. Núna er stöðugt að streyma frá henni gullkornin
Aldís var að borða skyr í hádeginu um helgina. Ég skrapp frá og skipti á Arnóri á meðan. Þegar ég kom til baka var Aldís búin að dunda sér við það að bera skyrið á allt elhúsborðið. Þegar hún sá að ég var komin til baka, stökk hún á fætur og sagði….. “mamma.. mamma.. mamma ég elska þig”….. (ein að reina að mýkja mömmu sína upp til að fá vægari dóm fyrir þennan verknað).
Síðar þann sama dag um kvöldmataleitið stóð ég í elhúsinu og var að fara byrja að elda.. Fyrr um daginn hafi Aldís spurt hvað ég ætlaði að gera við fiskinn sem ég hafði tekið út úr frysti. Ég svaraði “í kvöldmatinn ætlum við að borða fisk”.
Aldís kemur til mín þegar ég fer að undirbúa fyrir kvöldmatinn og segir ” mamma nennir þú ekki að elda… eigum við ekki að fá okkur bara svona.. dregur hún pakka tómatapasta úr skúffuni” svona sem ég geri þegar ég er að fara elda eitthvað í flíti.. Mig grunar að henni hafi ekki litist vel á fiskinn sem ég ætlaði að gefa henni
Í gær vorum við stödd í afmæli hjá Erlu. Hún var 21 árs í gær og óskum henni enn og aftur til hamingju með afmælið. Þegar við ákváðum að fara koma okkur.. Enda klukkan margt. Setti Sigmar Aldísi í bílinn og spennti beltið. En þar sem Sigmar ætlaði að vera aðeins lengur í afmælinu kisstumst við bless fyrir frama bílinn og sá Aldís okkur kissast. Ég fer svo og spenni Arnór fastan og þá segir Aldís með voðalega sætt bros.. ” mamma ástfanginn”.. ég sagði “haaa.. haaa hvað varstu að segja”. hún endurtekur fyrir heyrnalausu mömmu sína.. “mamma voða ástfanginn”.. í þetta skiptið heyrði ég hana alveg segja þetta.. og segi samt til að vera viss hvað segiru? hún endurtekur enn og aftur.. enda vön því að þurfa segja allt aftur og aftur fyrir mömmu sína.. “mamma og pabbi voða ástfanginn”… ég gat ekki annað en brosað.. já segir ég.. það er alveg satt.
En ég undra það mjög hvaðan hún hefur fengið þetta orð. Um leið og sigmar kom heim sagði ég honum frá þessu gullkorni og spurði hann hreynlega út hvar hún hefði eiginlega lært þetta orð. Hann segir núúú auðvitað teiknimyndirnar og sögurnar.. Hún er öll í ævitýrunum núna. Hafmeyju sögum, öskubusku og mjallhvíti.
Annars eru bara allir hressir hér á bæ. Ég geri ekki annað en að læra þess á milli sem ég sinni börnunum og húsverkum. Enda er ég 6 einginum frá fullu námi. þ.e.a.s ég er í 4 fögum en 6 fög eru talinn fullt nám.
Ég er svo dugleg
jæja læt þetta duga.. Þið heyrið trúlega næst í mér þegar niðurstöðurnar hafa borist varðandi ónæmisgallan hans Arnórs.
kv. sandra.
miðvikudagurinn góði.
Jæja kæru landsmenn nær og fær.
Aldís fór í leikskólan í dag og hefur náð sig alveg eftir aðgerðina. Röddinn hennar breyttist töluvert og greinilega mikið sem kirtlarnir breittu röddinni hennar. Hún er mun skærari núna og svona kvell einhvernveginn. Veit eignilega ekki hvernig ég á að lýsa því
Allavega þá fór ég með hana fyrsta sinn í klippingu í gær. Ég lét klippa hana stutta og var tekið alveg 10-15 cm af hárinu hennar. Núna er hún komin með hárið rétt fyrir ofan axlir og rosalega sæt eins og alltaf. En þetta gerði hana rosalega flotta. Hárið ekki svona útum allt og alltaf flækt.
Arnór er líka bara hress. reyndar með svolítinn ljótan hósta á morgana sem losnar svo þegar lengra líður á daginn.
Hann er komin með tönnslu nr 2 sem kom í nótt.
Í morgun fór ég svo með hann í blóðprufu til að athuga statusinn á ónæmisgallanum og væntanlega eftir 10 daga ættum við að vera komin með niðurstöður hvernig næsta framhaldið verður með það að gera. En mig langar til þess að sýna ykkur hvernig yngsti bóndinn ferðast um húsið:
Bara flottur hehe. Maður kann að redda sér.
http://www.youtube.com/watch?v=LaEqhLfzJLo
Hjá mér: Skólinn er byrjaður núna að fullu svo það er nóg að gera á mínum bæ næstu mánuði.
Bið að heilsa í bili.